Heyrðu er ekki kominn tími til að blogga um busunina
?? Ég held það bara!Busunin byrjaði á þriðjudag, þá þurfti maður að gjöra svo vel að fara með strætó í skólann í öfugum fötum (in side out), með tígó og ómáluð
, þetta hefu örugglega verið allt í lagi fyrir suma, en ég fékk allavega ljótuna, og hún fór ekkert næstu dagana.....
Næstu tveir dagar liðu einhernveginn, með ótrúlegas mörgum hlátursköstum
, þetta er svona það sem stóð upp úr:
- Allir voru stimplaðir, það stóð semsagt BUSI framan í öllum, það gerði ekki mikið fyrir útlitið....

- Margir fengu skilti framan á sig.....
- Vala greyið var klædd í tvo ruslapoka, því henni tókst að vera fín í öfugum fötum...

- Katí og ég vorum teipaðar saman á höndunum!! Af illum fjórðubekkingi..... Og við vorum að fara í tíma...

- Ég var alltaf dettandi af línunum......

- Við vorum sett í leikfimi á miðvikudaginn, allur skólinn horfði á okkur hlaupa eins go brjáluð, gera höfuð herðar, skríða eins og köngulær, og helling annað á blautum malarvelli.....
! Og ég var í pilsi.....
- Ég komst þrisvar sinnum á svarta listann
, einu sinni bað ég um það, einu sinni stóð ég ekki á línunni, og svo þoldi ein stelpan ekki að ég skyldi ekki beygja mig almennilega í leikfiminni og skellti mér á listann og Völu líka afþví að hún stóð rétt hjá mér.....
Svo var það BUSAVÍGSLAN
! Við þurftum að bíða til hádegis, sem var nóg til að gera mann taugaveiklaðan og jolly.....svo klukkan tólf biðum við öll upp í stofu.......og bara biðum, böðlarnir voru ekkert að flýta sér
! Svo allt í einu heyrist svona Lord-of-the-ringdauðahræðslusinfóníu tónlist út af lóð og allt í einu var bankað brjálæðislega á hurðina.
.......hún var nefnilega alveg óvart læst, ég varð pínu hrædd, alveg það mikið að ég sveiflaðist yfir borðið aftast í stofuna til Völu sem var líka hrædd.....
Svo æddu böðlarnir inn og þeir voru ógeð, í svona skurðlæknabúningum með rauða málningu á sér og hvítir og rauðir í framan,
þeir öskruðu eins og brjálaðir og sprautuðu á okkur vatni úr risa vatnsbyssum
, við þurftum að fara undir borð og aftur upp á borð og týna tyggjóklessur undan borðunum, og leika kindur, ójá, og fara í bleyju
!! Og við fengum gg flottan busabol,
kannski ekki beint flottan í skólann, en flottur minjagripur samt.
Svo hlupum við bara út á lóð go það var æðislega gaman
, við þurftum að fara í svona hoppukastalaklifurbraut sem var rennblautur af vatni

, og renna okkur niður sápuplast, ég tók aðeins of mikið tilhlaup og klessti beint á Hugrúnu, alveg óvart sko.
......og svo þurftum við aftur að leika kindur og segja meme
, og svo þurftum við að skríða í mold, og svona hringleiki með appelsínu og spilum, það var hent í mig vatnsblöðru af því að ég missti niður appelsínu í þannig leik, það var kalt.........
Svo var okkur ollum safnað saman fyrir framan tröppurnar, og við þurftum að krjúpa og lúta böðlunum
, og svo urðum við að vera kyrr og mátum ekki tala og líta upp, og þá fór yfirböðullinn að tala
. Ég hló svo svakalega af þeirri ræðu
( í hljóði auðvitað, mátti ekki heyrast í mér), hún sagði meðal annars að það væri svo ógeðslegt svitatáfýluog hormóna lykt af okkur busunum að það væri ekki hægt að anda að sér sama andrúmslofti og við, það skipti engu máli hvort að við hefðum verið vinsæl í 10 bekk, og að smettin okkar væru ógeðsleg
. Skemmtilegt já
. Svo las hún upp svarta listann, o gþeir sem voru honum þurftu að borða hákarl með súrri gúrku og gráðosti, og skola því niður með mysudrykk.
......ég var ógeðslega hrædd, ég vildi ekki lenda í þessu, en svo var ég ekkert lesin upp því ég hafði ekki nógu fyndna ástæðu, vá hvað ég var ógeðslega fegin
......
Svo kom þessi æðislega stund þar sem við vorum vígð inn í skólann, ég fékk hnút í magann af hátíðleika
, en það fór alveg þegar ég fékk ausu af ísköldu vatni yfir mig
...... Svo urðu margir væmnir eftir á, mikið af knúsi og faðmi, auðvitað, allir að verða menntskælingar halló

!
Ég var ógeðslega rennblaut, skítug, og ískalt, en samt komst ég í strætó og í banka til að millifæra á debetkortið mitt
, sem var allt í lagi, konan sem afgreiddi hafði bara gaman af þessu, örugglega ekki oft sem fólk kemur svona flott í bankann ......
Ef ég kynni að setja mynd af mér, Berglindi, Völu, Katí og Ernu eftir vígsluna myndi ég sko gera það, hún er frekar skrautleg
........verð bara að stela þessum myndum af blog.central.is/ftpa (bekkjarsíðan)....

Vala komin í pokann
Ég og Katí teipaðar saman

Við vorum eitthvað að pósa þarna
Ég, Vala, og Katí +
Við að dansa, Erna,ég og Vala
Gaman að dansa
(Ingvi fór fyrir
)
Bekkjarmynd í æðislega fyrirpartíinu
Svo var bara fyrirpartí og busaball, það var æðislega gaman
, og allir dönsuðu af sér skóna, ég eiginlega bókstaflega, þurfti að labba heim berfætt því að skórnir meiddu mig svo mikið......
Vonandi entust þið til að lesa alla leið hingað, svo þið getið commentað á þetta laaaaaaanga blogg
!
Bæjó